30 ára afmæli Björgunarhundasveitar Íslands

Í tilefni af 30 ára afmæli Björgunarhundasveitar Íslands verður haldið létt kaffiboð um borð í Sæbjörgu laugardaginn 4. desember niðri á Faxagarði frá kl. 15:00-18:00

Björgunarhundasveit Íslands var stofnuð þann 8. desember árið 1980 að tilhlutan Landssambands hjálparsveita skáta (nú Slysavarnarfélagið Landsbjörg). Aðal tilgangur sveitarinnar hefur frá upphafi verið að þjálfa hunda til leitarstarfa.