Æfing á Hæl í Flókadal

Á sunnudaginn var haldin æfing á Hæl í Flókadal.

Var Hælsbóndinn búinn að setja upp rústasvæði í fjárhúsunum, og var afar fróðlegt að sjá hvernig hundarnir brugðust við aðstæðum. Voru 5 faldir á hinum ýmsu stöðum, m.a. undir jötunum, beint fyrir framan allar kindurnar, undir gólffjölunum, inni hjá hrútunum, osfrv. Í hádeginu var boðið upp á dýrindis máltið að hætti Hælsbænda.

Eftir hádegi var svo farið í víðavangsleit og var hópnum þá skipt upp í tvo hópa. Þá var æft innan um hrossastóðin og var forvitnilegt að sjá hestana hlaupa á eftir hundunum er þeir voru að leita. Það truflaði hundana ekkert þó að hestarnir væru mjög áhugasamir um leitina. Eftir æfingarnar var síðan boðið í kaffi og málin rædd. Þetta var mjög svo skemmtilegur og áhugaverður dagur.

Takk kærlega fyrir Harpa og Jói.