Félagar í BHSÍ gefa í neyðarsjóð vegna flóða í Englandi

SARDA Lakes http://lakes-searchdogs.org er björgunarhundasveit á Englandi sem hefur haft mikið samstarf við BHSÍ. Meðal annars hefur björgunarsveitin sent leiðbeinendur á námskeið BHSÍ og aðstoðað okkur við þjálfun og úttektir. Einnig hafa félagar okkar heimsótt SARDA Lakes á Englandi og tekið þátt í námskeiðum.

Í nóvember á síðasta ári voru mikil flóð á þeim slóðum sem SARDA Lakes starfar. Félagar í BHSÍ söfnuðu innan sinna raða framlagi í neyðarsjóð vegna flóðanna og með framlagi sveitarinnar voru gefin 600 pund. Sagt var frá gjöfinni á netmiðlinum grough: https://www.grough.co.uk/magazine/2010/01/05/icelandic-search-dog-teams-gift-to-cumbrian-flood-fund