Leit að ungum manni í Reykjavík

Leit stendur nú yfir að Jakobi Hrafni Höskuldssyni, sem saknað hefur verið í Reykjavík síðan snemma í gærmorgun.

Leitin beinist að svæðinu í kringum Elliðaár og íbúðarhverfum þar í kring.
Kallað var á hundateymi til leitar rétt fyrir miðnætti í gær og leituðu þau fram undir morgun. Þau hófu svo aftur leit um kl. 14:00 í dag og eru enn að.