Leit hætt: Ferðamaðurinn heill á húfi

Leit að spænskum ferðamanni sem leitað hefur verið að síðan í gærkvöldi hefur verið hætt en vitað er að hann kom sér til byggða og er heill á húfi.

Mannsins var leitað á svæðinu milli Hrafntinnuskers og Álftavatns. Athuganir sem fóru fram samfara leitinni gáfu til kynna að hann hefði breytt ferðaáætlun sinni og komið sér sjálfur til Kirkjubæjarklausturs. Maðurinn er um fimmtugt og var einn á ferð, en hundrað björgunarsveitarmenn og leitarhundar höfðu leitað hans síðan í gærkvöldi. (Frétt tekin af mbl.is)