Rjúpnaskyttu leitað

Allar björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út til að leita að manni við Skáldabúðir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Mannsins hefur verið saknað frá því um hádegi. Hann fór á rjúpnaveiðar ásamt félögum sínum í morgun og höfðu þeir ráðgert að hittast í hádeginu.
Þegar hann skilaði sér ekki kölluðu félagar hans eftir aðstoð.
Nokkur teymi frá BHSÍ eru á leið á staðinn.