Rústaleitaræfing í Reykjanesbæ

Haldin var rústarleitaræfing á æfingarsvæði BS í Reykjanesbæ, fjögur hundateymi mættu á æfinguna í fínu veðri.

Settar voru upp nokkrar leitaræfingar og gengu ágætlega fyrir utan smá óhapp hjá Skugga sem skarst á fæti og var búið um sárinn hjá honum.

Sá yngsti sem mætti á æfinguna var Jökull Ernir Steinarsson, 1 árs sonur hennar Jóhönnu, snemma er byrjað að þjálfa nýliðana og ekki er talað um að hundaþjálfun sé ekki fjölskylduvænt áhugamál. Jökull Ernir fékk að fylgjast með hundunum og líkaði vel.

Á æfinguna mættu:
Jóhanna og Morris
Halldór og Skuggi
Guðmundur Helgi og Tumi
Ragnar og Míló
Jökull Ernir nýliði
Verið að hlynna að Skugga.