Sumarnámskeið á Úlfljótsvatni 19. – 21. september

Fjórða sumarnámskeið BHSÍ var haldið á Úlfljótsvatni dagana 19. til 21. september. Fjöldi teyma á námskeiði var 30 en heildarfjöldi á námskeiðinu var 35 manns.

Leiðbeinendur voru Ingimundur, Þórir og Anna Sigríður leiðbeinandanemi og Snorri var námskeiðsstjóri. Dómarar í prófum voru Auður, Ragga, Helgi, Elín og Maurice.

Æft var á tveimur svæðum í meiri úrkomu en elstu menn muna eftir og jafnframt voru haldin próf á tveimur svæðum alla dagana.

Prófum luku:

A próf:
Björk og Krummi
Hlynur og Moli
Snorri og Kolur

B próf:
Kristinn og Tása
Smári og Skytta
Valur og Funi

C próf:
Emil og Gríma
Guðbergur og Nói

Ekki er hægt að æfa eða halda próf án þess að einhver liggi úti og þökkum við öllum sem hjálpuðu til við það.