Útkall 28. ágúst 2010 – Leit að manni í Hvalfirði.

Að morgni laugardagsins 28. ágúst sl. voru björgunarsveitir á svæði 4 kallaðar út vegna leitar að manni sem hafði týnst í Svínadalnum, Hvalfirði.  Óskað var aðstoðar frá BHSÍ og gáfu fjögur teymi kost á sér. Um 50 mínútum seinna var leit afturkölluð þar sem maðurinn fannst heill á húfi.

Teymin:
Hafdís og Breki, Emil og Gríma, Valur og Funi, Kristinn og Tása.