Klukkan 19:40 var beðið um hunda til leitar að manni sem hafði verið saknað síðan á fimmtudag en bíll hans hafði fundist vestan Nesjavallavirkjunnar. 4 teymi fóru á staðinn:
Ingimundur/Frosti, Ragga/Jökull, Elín/Skotta og Maurice/Stjarna.
Leituðu teymi svæði báðu megin við Nesjavallaveg og náði svæðið frá bíl mannsins að afleggjara að Hafravatni. Það var hundurinn Frosti sem fann svo manninn látinn rétt fyrir miðnætti í nótt í Dyrdal við Dyrfjöll sem eru vestan við Nesjavallarvirkjun.