Útkall 7. ágúst. Leit að manni í Skaftafelli.

Leitað var að manni sem hafði síðast sést um klukkan hálftvö aðfararnótt mánudagsins.

3 teymi fóru á staðinn frá BHSÍ. Hófu þau leit seinnipart mánudags og leituðu með hléum fram á morgun á þriðjudegi er maðurinn fannst hrakinn og þrekaður um áttaleytið.

Hann fannst um 5 km fyrir sunnan þjóðveg eitt milli Skaftafellsár og Skeiðarár eftir að spor hans höfðu fundist í sandinum.