Útkall 9. september – Leit að stúlku í Grafarvogi

Þann 9. september 2010 barst BHSÍ útkall vegna stúlku sem var týnd í Grafarvogi. 4 hundateymi auk 2 aðstoðarmanna fóru í útkallið en stúlkan fannst stuttu eftir að leit var hafin, heil á húfi.

Teymin: Emil og Gríma, Hafdís og Breki, Kristinn og Tása, Ólína og Skutull.
Aðstoðarmenn: Nikulás Hall og Björn Þorvaldsson.