Útkall Hornströndum

Teymi frá sveitinni eru nú lögð af stað með þyrlu Landhelgisgæslunnar áleiðis á Hornstrandir til leitar að 23 ára gömlum þýskum ferðamanni sem varð viðskila við samferðamenn sína.

Mikil þoka var á svæðinu þegar maðurinn týndist. Óttast er um afdrif hans þar sem ferðaveður er slæmt, mikil rigning og kalt.