Útkall Landmannalaugar 2.ágúst

Aðfararnótt sunnudags var óskað eftir hundum til leitar að hollenskum manni er saknað var í Landmannalaugum. Teymi leituðu hraunið inn að Brennisteinsöldu.

Maðurinn fannst heill á húfi um klukkan 7 um morgunin.
Teymi sem leituðu voru : Elín og Skotta, Ingimundur og Frosti, Anna og Kópur, Halldór og Skuggi.