Útkall Öskjuhlíð og nágrenni 14. og 15. desember

Beðið var um hunda seinnipart miðvikudagsins 14. desember til leitar að 18 ára gömlum manni sem saknað hafði verið frá því um nóttina. Einblínt var á svæði í Öskjuhlíð og nágrenni.

Teymi leituðu nokkur svæði og lauk síðasta teymi leit klukkan 21.45. Leit bar engan árangur þetta kvöld. Leit var fram haldið morgunin 15. desember og skiptu teymi með sér fjörunni frá Skerjafirði að Kársnesi. Leit var afturkölluð klukkan 12.00. Maðurinn fannst í sjónum við Nauthólsvík. Hann var látinn.

5 teymi frá BHSÍ leituðu báða dagana.