Útkallsæfing Hópsnesi, Grindavík

Í gærkveldi fór fram þriðja útkallsæfing sumarsins fyrir útkallsteymi sveitarinnar.

Skipuleggjandi að þessu sinni var Anna S. Sigurjónsdóttir. Leitað var á Hópsnesi og voru 5 teymi sem tóku þátt: Ragga/Jökull, Elín/Skotta, Gunnar/Krummi, Hermann/Monsa og Ingimundur/Frosti.

Ásamt því að leita þurftu björgunarmenn að hlúa að þeim týnda með því að athuga líðan og meiðsli og óska svo eftir frekari aðstoð ef þörf var á. Æfingin hófst um klukkan 23:00 og 49 mínútum seinna voru allir þeir 5 sem voru týndir, komnir í leitirnar. Flottur árangur og vilja útkallsmenn og konur þakka skipuleggjanda og öllum aðstoðarmönnum kærlega fyrir frábæra æfingu.