Velkomin á nýja heimasíðu BHSÍ

Nú hefur verið tekin í gagnið ný heimasíða Björgunarhundasveitar Íslands en unnið hefur verið að gerð hennar í nokkrar vikur.

Viljum við þakka þeim sem komu að verkinu kærlega fyrir. Nýja síðan býður upp á heilmikla möguleika og er það þá helst nýtt myndasafn og nýtt spjall. Unnið er að því að setja allar myndirnar inn og einnig má taka það fram að bæði er spjallið fyrir gesti síðunnar og einnig er lokað svæði fyrir félaga. Enn á eftir að setja inn teymi og greinar en það mun gerast fljótlega.

Ragnheiður Hafsteinsdóttir, vefstjóri.