Víðavangsleitar- og gönguæfing sunnudaginn 19. september 2010

IMG_5087Æfð var víðavangsleit við Há-Hrafnshlíð og Festarfjall á Reykjanesi Æfing fólst í göngu- og leitaæfingu. Gengið var á leitarsvæði sem var á Há-Hrafnshlíð. Leitar- og gönguæfingin tók um 4 klst. Þetta skipulag reyndist vel að sameina göngu og leit, og ekki síst fyrir hundana að vera til friðs á göngunni.

Á gönguleiðini fór fígurant úr hópnum og kom sér fyrir á fyrir fram ákveðnu leitarsvæði. Að leit lokinni var göngu haldið áfram á Festarfjall og var leiðarvalið á fjallið þar sem það var sem brattast og reyndi sem mest á göngumenn.

Leitaræfing sett upp fyrir;

Teymi: Halldór og Skuggi (A)
æfing:                  leit, í fjalllendi, misvinda uppstreymi beggja vega fjalsins.
leitarsvæði:        500 m x 500 m.
Umhverfi:           Brattar hlíða möl og móberg
Fígurant:             Viktor

Teymi: Guðmund Helga og Tuma
æfing:                  Leit, styrkja markeringu í vísun.
leitarsvæði:        100 m x 100 m.
Umhverfi:           Mosivaxið hraun
Fígurant:             Halldór