Víðavangsúttektum sumarsins lokið

Þá er víðavangsúttektum sumarsins lokið og er uppskeran framar vonum.

Fimm teymi luku B-prófi, eru þar með komin á útkallsskrá sveitarinnar og geta byrjað að spreyta sig í útköllum. Í B prófi er verið að prófa bæði hund og mann. Hundurinn verður að „markera“ (láta eiganda vita að hann sé búinn að finna) greinilega og mikilvægt er að eigandi hafi æft svæðisvinnu vel því án góðs skilnings eiganda á landslagi og hvernig vindur hagar sér í mismunandi landslagi er góður hundur lítils virði.

Fjögur teymi luku A prófi og teljast þar með full þjálfuð en ekki gengur samt að slá slöku við við æfingar því þau þurfa öll að taka A-endurmat næsta sumar enda þurfum við að sanna okkur á hverju ári til að halda okkur á útkallsskránni. Mikilvægt er að kynna hundinn fyrir sem flestum aðstæðum sem við getum átt von á að mæta í útköllum og er upplagt fyrir reynd teymi að prófa sem flest til að eigandi læri að lesa í hegðun hundsins við mismunandi aðstæður.

Við munum halda áfram að æfa fram eftir hausti og vetri en með hléi í desember og þegar snjórinn lætur sjá sig byrja æfingar í snjóflóðaleit af fullum krafti.