Landsbankinn gefur GPS tæki

Landsbankinn á Ísafirði færði í dag Björgunarsveitinni Blakki á Patreksfirði og Björgunarsveit Ísafjarðar sitthvort GPS staðsetningartækið af Garmin gerð. Það voru félagar sveitanna, þær Auður Ingvadóttir og Bríet Arnardóttir sem veittu tækjunum viðtöku en þær eru einnig félagar í BHSÍ og munu hafa umsjón með tækjunum. Á Vestfjörðum eru þrír útkallshundar og fjórir aðrir í þjálfun. Á meðfylgjandi mynd má sjá þær Auði og Bríet ásamt hundum…