Þjálfun björgunarmanna

Björgunarhundasveit Íslands

Inngangur

Þessi reglugerð skilgreinir þær kröfur um þjálfun sem gerðar eru til björgunarmanna á útkallslista.

Almenn grunnþjálfun björgunarmanna

Kröfurnar taka mið af námskeiðum sem standa til boða hjá Björgunarskóla SL hverju sinni og endurskoðast reglulega.

Námskeið sem flokkast undir „Björgunarmann 1“

  • Fyrsta hjálp 1 (20 klst)
  • Leitartækni (16 klst)
  • Ferðamennska (6 klst)
  • Rötun (12 klst)
  • Fjallamennska 1 (20 klst)
  • Fjarskipti 1 (3 klst)
  • Björgunarmaður í aðgerðum (3 klst)
  • Öryggi við sjó og vötn (3 klst)
  • Snjóflóð 1 (12 klst)


Námskeið sem flokkast undir „Björgunarmann 2“

  • Fyrsta hjálp 2 (20 klst)
  • Göngu GPS


Fullgildur félagi í annarri björgunarsveit telst uppfylla kröfur um þjálfun sem gerðar eru til björgunarmanna á útkallslista.

Endurmenntun

Félagar á útkallslista þurfa að halda þekkingu sinni við. Fræðslunefnd skipuleggur endurmenntunarnámskeið.

Þátttaka á æfingum og námskeiðum

Félagar skulu mæta reglulega á æfingar í sumar- og vetrarleit og taka þátt í að minnsta kosti tveimur helgarnámskeiðum (2-4 dagar) yfir sumarið og vetrarnámskeiði (5 dagar) eftir því sem hægt er.

 

 

Samþykkt af fræðslunefnd BHSÍ, 19. júní 2007,
Ingimundur Magnússon, Nikulás Hall og Snorri Þórisson