Um BHSÍ

Sveitin er 40 ára gömul

Björgunarhundasveit Íslands var stofnuð þann 8. desember árið 1980 að tilhlutan Landssambands hjálparsveita skáta (nú Landsbjörg). Aðal tilgangur sveitarinnar hefur frá upphafi verið að þjálfa hunda til leitarstarfa. Árið 1984 var haldið fyrsta skipulagða námskeiðið í leit í snjóflóðum með leiðbeinendum frá Norske Redningshunder (NRH). Á því námskeiði voru útskrifaðir hundar til leitar í snjóflóðum. Sömu hundar höfðu farið til Patreksfjarðar 1983 þegar snjóflóð féll á bæinn. Frá árinu 1984 hafa verið haldin námskeið í snjóflóðaleit á hverju ári með norskum leiðbeinendum. Fyrsta námskeiðið var þrjár helgar í röð en síðan 1985 hafa þessi námskeið staðið yfir í fimm til sjö daga samfellt. Árið 1992 urðu þáttaskil í starfi Björgunarhundasveitarinnar þegar hún hóf markvissa þjálfun hunda til leitar á auðri jörð.

Hrefna var fyrsti hundurinn á útkallsskrá BHSÍ. Hrefna er jafnframt kallmerki Björgunarhundasveitarinnar.

Öflug fræðsla og námskeiðahald

Frá árinu 1992 höfum við árlega haldið námskeið með leiðbeinendum frá Noregi og Bretlandi. Þátttakendur á þessum námskeiðum hafa frá upphafi verið úr öllum samtökum björgunarmanna. Í dag eigum við leiðbeinendur bæði í snjóflóðaleit og víðavangsleit og um 20 hunda til leitar í snjóflóðum og á auðri jörð. Fjöldi hunda og eigenda æfir að staðaldri með Björgunarhundasveitinni, yfirleitt vikulega. Þær reglur um mat á hundum og mönnum sem við notum eru að mestu fengnar frá Noregi og Bretlandi en hafa í tímans rás verið staðfærðar að aðstæðum hér á landi. Sveitin heldur námskeið reglulega til úttektar á hundum, eitt 5 daga á veturna og þrjú til fjögur helgarnámskeið á sumrin. Björgunarhundasveit Íslands hefur eftir fremsta megni reynt að tileinka sér þær nýjungar í þjálfun sem fram koma erlendis.

John Skjørestad og Sylvelin Andersen, leiðbeinendur í víðavangsleit frá Norske Redningshunder. Þau komu til okkar á námskeið sem haldið var á Gufuskálum árið 2013

Samvinna við erlendar björgunarsveitir

Við eigum aðild að alþjóðasamtökum björgunarhundasveita auk þess sem við höldum góðu sambandi við félaga okkar í Noregi (NRH) og Bretlandi (SARDA). Að fenginni reynslu er það álit okkar sem störfum að þessum málum að það þurfi að vera hundar á þeim stöðum þar sem er snjóflóðahætta því eins og við vitum, er nauðsynlegt að koma hundum á slysstað eins fljótt og auðið er. Það er reynsla okkar að frumkvæðið verði að koma frá einstaklingnum sjálfum svo hann sé tilbúinn að leggja út í svo mikla vinnu sem hundaþjálfun er. Tvö ár er lágmarkstími til að þjálfa hund svo hann geti talist öruggur sem björgunartæki, eftir það þarf stöðugt að halda þjálfun hans við. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar starf Björgunarhundasveitarinnar geta sent póst á stjorn.bhsi@gmail.com
Fimm félagar í BHSÍ tóku þátt í alþjóðlegri æfingu í rústaleit á Möltu árið 2017.