Útkall Þjórsárdal 20. júlí

Björgunarsveitir fundu um kl. 11 í morgun, mann sem leitað hafði verið að í Þjórsárdal síðan í gærkvöldi. Maðurinn sem er 82 ára varð viðskila við fjölskyldu sína sem hafði tjaldað skammt frá bænum Skriðufelli um kl. 23 í gærkvöldi og leitaði fjölskylda hans að honum fram á nótt. Lögregla kallaði út björgunarsveitir í Árnessýslu uppúr kl. 04 í nótt og hófu þær þegar leit og fljótlega bættust við björgunarhundar af höfuðborgarsvæðinu. Um…