Útkall 17. september, framhald leitar eftir sjóslys á Viðeyjarsundi.

Leit að manninum sem var saknað eftir sjóslysið á Viðeyjarsundi síðustu helgi var framhaldið
í dag og hófst hún í morgun. 3 teymi frá sveitinni tóku þátt í að leita: Ragga/Jökull,
Maurice/Stjarna og Hermann/Monsa. Teymin fengu svæði frá Varmá í Mosfellsbæ aðGeldingarnesi. Það var svo um klukkan 17.30 að maðurinn fannst með neðansjávarmyndavél á svipuðum slóðum og talið er að bátnum hafi hvolft síðustu helgi….