25 ára afmæli sveitarinnar

Í tilefni af 25.ára afmæli sveitarinnar var haldið afmælisboð síðasta laugardag frá klukkan 18-21 í skólaskipinu Sæbjörgu. Margt var um manninn og góðar veitingar í boði. Veislustjóri var Þórir Sigurhansson. Mikið var um ræðuhöld og frásagnir um nýja og gamla tíma og var gaman að heyra sögur frá gömlum félögum og var þar á meðal einstaklega skemmtilegur upplestur frá fyrstu stjórnarfundum BHSÍ fyrir 25 árum. Það var Sólveig Smith sem hafði í…