Fyrirlestrar á vegum sveitarinnar

Við höfum verið dugleg að halda allskonar fyrirlestra á miðvikudagskvöldum í vetur. Síðustu tveir fyrirlestrar voru í höndum Ingimundar. Fyrri fyrirlesturinn fjallaði um hundaþjálfun og fór Ingimundur fyrst yfir sinn feril sem hundamanns og þjálfara, síðan tók hann fyrir skeiðin í lífi hundsins, hvatir hans og hvernig hundurinn nýtist í björgun á fólki og hvernig við þjálfum þá upp. Síðari fyrirlesturinn var svo haldinn í gærkveldi í húsi Landsbjargar og…