Leit að ungum manni í Reykjavík

Leit stendur nú yfir að Jakobi Hrafni Höskuldssyni, sem saknað hefur verið í Reykjavík síðan snemma í gærmorgun. Leitin beinist að svæðinu í kringum Elliðaár og íbúðarhverfum þar í kring.
Kallað var á hundateymi til leitar rétt fyrir miðnætti í gær og leituðu þau fram undir morgun.
Hófu svo aftur leit um tvö leytið í dag og eru enn að.