Vetrarnámskeið mars 2008

Árlegt vetrarnámskeið BHSÍ var haldið dagana 8. til 14. mars á Steingrímsfjarðarheiði en þátttakendur héldu til á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. 29 teymi tóku þátt og nutu aðstoðar unglingadeildarinnar Hafstjörnunnar frá Ísafirði, Björgunarsveitarinnar Dagrenningar frá Hólmavík auk atvinnufígurantanna Rúnars, Sigurðar, Sigrúnar og Ægis.
Leiðbeinendur voru Lisbeth og Oddbjorn frá Noregi auk Halldórs, Ingimundar og Þóris.