Útkallsæfing 17. maí 2008 við Bolungarvík

Teymi skipuleggja sig fyrir leit.
Félagar í Vestfjarðadeild Björgunarhundasveitar Íslands og Björgunarfélagi Ísafjarðar efndu sameiginlega til útkallsæfingar á Skálavíkurheiði og í Tungudal ofan Bolungavíkur í gær.
Sett var á svið leit að fjórum týndum einstaklingum – kærustupari sem hafði átt að koma fótgangandi frá Skálavík en borið af leið, og feðrum þeirra sem höfðu ákveðið að fara til móts við þau á sunnudagsmorgni.