Útkall 5. ágúst, leit við Heklu

Um klukkan 23.45 þann 4.ágúst var hringt og beðið um að nokkur teymi yrðu viðbúin því að fara til leitar að pólskum ferðamanni er saknað var við Heklu. Hann hafði farið þangað með hóp en orðið viðskila við hann.
Síðan var það um klukkan 2 um nóttina að óskað var eftir að teymi héldu á staðinn.
Maðurinn fannst um klukkan 5.30 þegar teymi voru að hefja leit.
Teymi sem tóku þátt : Elín/Skotta, Ingimundur/Frosti, Hermann/Monsa,…

Útkall Landmannalaugar 2.ágúst

Aðfararnótt sunnudags var óskað eftir hundum til leitar að hollenskum manni er saknað var í Landmannalaugum.
Teymi leituðu hraunið inn að Brennisteinsöldu.
Maðurinn fannst heill á húfi um klukkan 7 um morgunin.
Teymi sem leituðu voru : Elín/Skotta, Ingimundur/Frosti, Anna/Kópur, Halldór/Skuggi….