Leit hefur enn engan árangur borið

Leit að rjúpnaskyttunni sem saknað hefur verið síðan á laugardag hefur enn engan árangur borið.
Lögð var áhersla á að þéttleita svæði í 3 km radíus frá þeim stað er maðurinn sást síðast auk þess sem leitað var lengra en gert hefur verið síðustu tvo daga.
Teymi frá BHSÍ voru: Ragga/Jökull, Halldór/Skuggi, Elín/Skotta, Anna/Kópur, Gunnar/Krummi og Maurice og Stjarna.
Nokkur teymi munu fara í áframhaldandi leit á morgun….