Leit afturkölluð

Leit við Nesjavelli hefur verið afturkölluð, maðurinn er fundinn heill á húfi.
Teymi sem tóku þátt í leit voru : Gunnar/Krummi, Ingimundur/Frosti, Halldór/Skuggi, Maurice/Stjarna, Kristinn/Tása, Snorri/Kolur, Ingibjörg/Píla. Bríet/Skutla og Smári/Skytta voru svo á leiðinni frá Patreksfirði til að taka þátt í leit í dag en þeim var snúið við er afturkall barst….

Enn leitað á Nesjavöllum

Enn er leitað að 26 ára gömlum manni á Nesjavöllum en bifreið hans fannst þar um klukkan 17.00 í gær.
Teymi sem hófu leit í gærkveldi leituðu þar til um klukkan 05.30 í morgun en þá fóru flestir í hvíld.
Kallað var svo aftur út rétt fyrir 8 í morgun og er eitt teymi sem hefur verið við leit síðan þá.
Ráðgert er að það bætist í hópinn um miðjan dag og eru meðal annars teymi á leiðinni frá Patreksfirði….

Útkall í gangi á Nesjavöllum

Beðið var um hunda til leitar að manni á Nesjavallasvæðinu.
Útkall barst um 20.45 og þá héldu fyrstu teymi á svæðið.
6 teymi eru nú við leit á svæðinu….