Útkall 12. september – Leit að gangnamanni við Skagaströnd

Þann 12.september barst Björgunarhundasveit Íslands útkall vegna gangnamanns sem var týndur í nágrenni Skagastrandar. Björgunarsveitir í nágrenninu höfðu verið við leit í nokkra klukkutíma þegar BHSÍ fékk boð kl 19:19. Þá voru flestir félagar BHSÍ nýlagðir af stað af námskeiði sem haldið var á Gufuskálum yfir helgina.

7 hundateymi auk aðstoðarmanns lögðu af stað í útkallið. Teymin gerðu ráð fyrir að þurfa að leita í myrkri yfir…