Vetrarnámskeið 2013

Vetrarnámskeið Björgunarhundasveitarinnar var haldið á Hólmavík dagana 15.-21. mars síðastliðinn. Alls tóku 19 teymi þátt í
námskeiðinu. Veður var mjög gott allt námskeiðið fyrir utan einn dag þar sem skafrenningur og hressilegur vindur lét sjá sig en teymin létu það ekki á sig fá og æfðu stíft þann dag sem og alla hina dagana. Svæðin okkar voru í Selárdal ekki langt frá Hólmavík og nægur snjór var á svæðunum. …