Vetraræfingar að hefjast

Snjórinn hefur látið sjá sig óvenjulega seint á suðvesturhorni landsins og hefur því ekki verið nægileg snjósöfnun á okkar venjulegu æfingasvæðum til þess að hefja æfingar. Nú er hefur loksins nægur snjór sest í gil og lægðir í Bláfjöllum og er því ekkert því til fyrirstöðu að byrja æfingar í snjóflóðaleit. Æfingarnar eru á sunnudögum […]

Umfangsmikil leit að Birnu Brjánsdóttur

Félagar í Björgunarhundasveit Íslands tóku þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur í síðastliðinni viku. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag beindist leitin að vegum og slóðum í nágrenni Hafnarfjarðar en um helgina var leitarsvæðið víkkað verulega út. Þetta er ein umfangsmesta leit sem nokkru sinni hefur farið fram á landinu. Samtals tóku 11 víðavangs- og snjóflóðahundar […]

Snjóflóð í Esjunni

Tveir hundar frá Björgunarhundasveit Íslands tóku þátt í leit að manni sem lenti í snjóflóði í Esjunni rétt fyrir klukkan fimm í gær. Þrir göngumenn voru á leiðinni niður fjallið í Grafardal í um 500 m hæð þegar snjóflóðið hrifsaði þá með sér. Tveir komust af sjálfsdáðum úr flóðinu en talið var að sá þriðji […]