Úttektarreglur fyrir snjóflóðaleit
Úttektarreglur
fyrir snjóflóðaleit
1. Inngangur
Þessar reglur skilgreina þær kröfur sem Björgunarhundasveit Íslands gerir
til hunda og björgunarmanna sem teymi á útkallslista í snjóflóðaleit.
2. Úttektir og endurmat
Fyrsti áfangi teymis er úttekt í C flokki og er hún skilyrði til þess að
teymi geti hafið þjálfun til B úttektar.
Teymi sem stenst úttekt í B flokki skráist á útkallslista í eitt ár og
reynir að því loknu við úttekt í A flokki.
Teymi sem stenst úttekt í A flokki skráist á útkallslista í eitt ár og þarf
að fara í endurmat ár hvert.
Listi yfir teymi og niðurstöður prófa skulu geymdar hjá fræðslunefnd.
Tilkynna skal útkallslistann í snjóflóðaleit hverju sinni til
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
3. Almennar kröfur
Hundur skal hafa staðist hlýðnipróf samkvæmt gildandi reglum. Hundur skal
vera undir stjórn björgunarmanns að og frá leitarsvæði. Til þess að taka þátt í
útkalli skal björgunarmaður hafa staðist kröfur skv. reglugerð BHSÍ um þjálfun
björgunarmanna.
Ef hundur er beittur ofbeldi að mati dómara varðar það brottvísun úr
úttekt.
Ef talinn er vafi á heilsu hunds og frá 10 ára aldri skal framvísa vottorði
frá dýralækni um að hundur hafi heilsu til að taka þátt í björgunarstarfi.
Fræðslunefnd innritar teymi í úttekt þegar hún telur að það hafi fengið
nægilega þjálfun til að standast úttekt. Teymi sem er í endurmati í annað sinn
eða síðar er leyfilegt að vera með annan hund á námskeiði.
4. Dómarar
Úttekt í A og B flokki dæmist af tveimur dómurum, leiðbeinanda og A
hundamanni sem lokið hefur minnst einu endurmati. Úttekt í C flokki dæmist af leiðbeinanda.
Dómari/ leiðbeinandi þarf að hafa verið með hund í A
flokki, tekið minnst eitt endurmat og verið virkur í starfi sveitarinnar.
Fræðslunefnd metur hæfni dómara frá öðrum sveitum.
Dómarar velja leitarsvæði og ákveða leitartíma í úttektum. Svæði skulu vera
hæfilega stór miðað við landslag, veðurskilyrði og leitartíma. Dómarar ákveða
fjölda týndra og staðsetningu þeirra á svæði.
Dómarar skrá niðurstöður úr úttektum á þar til gerð matsblöð og koma sér
saman um niðurstöðu.
Geti dómarar ekki
komist að sameiginlegri niðurstöðu sendist álit hvors fyrir sig til
fræðslunefndar sem ákveður endanlega niðurstöðu. Sitji viðkomandi dómari eða
björgunarmaður einnig í fræðslunefnd þarf stjórn sveitar að skipa varamann til
að fjalla um málið.
5. Úttekt í C flokki
Úttektir í C flokki fara fram á námskeiðum eða æfingum samþykktum af fræðslunefnd.
Lágmarksaldur hunds er 9 mánaða.
Stærð svæðis er um 2.500 fermetrar (50m x 50m).
Fjöldi týndra er tveir.
Dýpt holu er allt að 1 metri frá þaki til yfirborðs.
Leitartími er um 15 mínútur.
Megin áhersla í C flokki er að hundurinn skilji að hann eigi að finna
manneskju undir snjónum. Hann skal finna þá týndu og gefa skýrt merki án
nokkurrar hvatningar frá björgunarmanni með því að grafa á staðnum. Heimilt er
að verðlauna hundinn fyrir rétta hegðun.
Ein leit nægir í
úttekt í C flokki.
6. Úttekt í B flokki
Úttektir í B flokki fara fram á óþekktum prófsvæðum á námskeiðum.
Lágmarksaldur hunds er 18 mánuðir.
Áður en teymi er innritað í úttekt í B flokki skal það hafa öðlast reynslu
í leitaræfingum í um eitt ár eftir að hafa lokið úttekt í C flokki.
Undantekning á þessu er þó að björgunarmaður sem áður hefur staðist úttekt í A
flokki í snjóflóðaleit má fara í úttekt með nýjan hund í B flokki sama veturinn
og hann stenst úttekt í C flokki, uppfylli hundurinn kröfur um aldur.
Stærð svæðis er um 10.000 fermetrar (100mx100m) .
Fjöldi týndra er tveir.
Dýpt holur er allt að 2 metrar frá þaki til yfirborðs.
Leitartími er um 25 mínútur.
Björgunarmaður skal gera grein fyrir þekkingu sinni um framkvæmd leitar og
björgunaraðgerðina í heild. Hann skal vera leiðandi í leitinni og sýna að hann
hafi skilning til að nýta getu hundsins og skilja viðbrögð hans.
Teymið skal með kerfisbundnum hætti leita allt svæðið að teknu tilliti til
landslags, veðurskilyrða og vísbendinga.
Hundurinn skal finna alla þá týndu og gefa skýrt merki án nokkurrar
hvatningar frá björgunarmanni með því að grafa á staðnum. Þegar
hundur gefur til kynna fund skal björgunarmaður merkja staðinn með blárri veifu
en honum er síðan heimilt að stinga með stöng til þess að staðfesta fund. Björgunarmaður
tilkynnir í talstöð grun um fund og heldur leit áfram. Hvort sem björgunarmaður
tilkynnir fund eða grun er það metið sem tilkynning um fund.
Teymið skal vera fært um að vinna jafnt að nóttu sem degi og nota skal ljós
og viðeigandi rötunartæki ef þurfa þykir. Teymið skal vera fært um að vinna á
svæði þar sem aðrir leitarflokkar eru að störfum með hvers konar tækjum og
útbúnaði, eða önnur teymi að leita nálæg svæði, án þess að það trufli
einbeitingu.
7. Úttekt í A flokki
Úttektir í A flokki fara fram á óþekktum prófsvæðum á námskeiðum.
Til þess að innritast í úttekt í A flokki skal teymi hafa öðlast reynslu í
snjóflóðaleit í um eitt ár eftir að hafa staðist úttekt í B flokki.
Kröfur í úttekt í A flokki eru þær sömu og í B flokki að viðbættum
eftirfarandi atriðum.
Lágmarksaldur hunds er 30 mánuðir.
Stærð svæðis er um 22.500 fermetrar (150mx150m) .
Fjöldi týndra er 0 til 4.
Dýpt holu er allt að 2 metrar frá þaki til yfirborðs.
Leitartími er um 30 mínútur.
Teymi sem ekki mætir eða fellur í úttekt í A flokki er tekið af
útkallslista og þarf að reyna aftur við úttekt í B flokki þegar fræðslunefnd
telur teymið tilbúið. Dómurum á námskeiði er þó heimilt að leyfa teymi að halda
B og fara í A úttekt á næsta námskeið. Björgunarmaður sem hefur staðist A
kröfur í víðavangsleit má reyna beint við B kröfur í sömu grein. Hundurinn sé
þó minnst 18 mánaða.
8. Endurmat
Endurmat fer fram á óþekktum prófsvæðum á námskeiðum en heimilt er að taka
endurmat á æfingum samþykktum af fræðslunefnd annað hvert ár. Endurmat í A flokki
geta tveir A hundamenn dæmt sem lokið
hafa minnst einu endurmati.
Kröfur í endurmati eru þær sömu og í úttekt í A flokki. Til þess að
innritast í endurmat skal teymi vera með gilda úttekt í A flokki. Teymi sem
mætir ekki eða fellur í endurmati er tekið af útkallslista og þarf að reyna
næst við úttekt í A flokki. Dómurum á námskeiði er þó heimilt að leyfa teymi að
halda B og fara í A úttekt á næsta námskeið.
Til þess að greiða fyrir endurnýjun er heimilt að taka endurmat með eldri
hundi þótt verið sé að þjálfa yngri hund á námskeiði.
Samþykkt af fræðslunefnd BHSÍ, 06.12.2023.
Helgi Kjartansson, Ingimundur Magnússon og Snorri Þórisson