Í dag á Björgunarhundasveit Íslands 45 ára afmæli. Sveitin var stofnuð 1980 af fólki sem hafði þá hugsjón að hægt væri að þjálfa hunda til leitarstarfa á Íslandi, sem viðbót við það sem aðrar sveitir voru að gera á þeim tíma.
Umhverfið var ekki mjög vænlegt á þessum tíma, hundahald bannað í flestum bæjarfélögum og sú skoðun nokkuð almenn að hundar væru best geymdir í sveitum þar sem þeir gætu hlaupið um frjálsir.
Nánast frá upphafi átti samt þetta fólk sterkan hljómgrunn hjá almannavarnarsamtökum landsins og samstarf við systursamtökin okkar í Noregi, Norske Redningshunde, lagði góðan grunn að því starfi sem þarna fór í gang.
Eitt var þó sveitinni til trafala. Sú staðreynd að sveitin, sem frá upphafi var skilgreind sem landsdekkandi bjargir þó hún ætti samastað í Reykjavík, gerði það að verkum að allar hefðbundnar fjáraflanir reyndust erfiðar. Sveitin eignaðist bíl en eigið húsnæði var aldrei til staðar þótt hún ætti lögheimili, fyrst hjá Hjálparsveitum skáta og seinna Landsbjörg og starfsfólk þar væri alltaf reiðubúið til aðstoðar. Og ekki má gleyma Landhelgisgæslunni sem flutti okkur og hundana á ótal námskeið hvort sem var á Ísafjörð, Akureyri eða Egilsstaði.
Það var snemma ákveðið af þeim sem voru í forsvari fyrir sveitina að þeim fjármunum sem fengust væri best varið til þess að auka fræðslu og hjálpa þeim sem vildu leggja á sig þá ómældu vinnu sem felst í því að þjálfa hund, auk þess að taka þátt í þeirri þjálfun og starfi sem aðrar sveitir stunda því flestir félagar sveitarinnar voru einnig félagar í sveitinni á sínu heimasvæði. Þetta var gert með því að niðurgreiða námskeið og allir leiðbeinendur sveitarinnar gefa enn þann dag í dag alla sína vinnu.
Sveitin breyttist því smám saman úr því að vera hefðbundin björgunarsveit yfir í að einbeita sér að kennslu og þjálfun hunda og notkun þeirra, en láta öðrum sveitum og Björgunarskólanum eftir að sinna annari þjálfun. Þetta hefur skilað sér í því að flestar sveitir eiga möguleika á að hafa þessu sterku leitartæki innan sinna raða. Þetta var þó ekki átakalaust og ekki alltaf skilningur á því hjá forustumönnum okkar samtaka, að okkar aðferð væri sú heppilegasta til að ná árangri og einnig sú ódýrasta.
Í dag er starf sveitarinnar mjög blómlegt. Fjöldi nýrra félaga í þjálfun og nú eru 16 sveitir innan Landsbjargar með hunda á útkallslista. Við horfum brött fram á veginn með hugmyndir um að auka við þær tegundir þjálfunar sem við stundum í dag, eins og vatnaleit til dæmis.
Aukinn stuðningur núverandi forystumanna SL á því starfi sem við erum að vinna hjálpar mikið og gerir okkur kleift að auka enn frekar þá fræðslu sem við veitum og gerir okkur í leiðinni sterkari sem samtök til að sinna því ómetanlega starfi sem björgunarsveitir landsins eru að vinna.