Leit að manni sem saknað er eftir sjóslys á Viðeyjarsundi síðustu helgi var fram haldið í dag og hófst hún í morgun. Þrjú teymi frá sveitinni tóku þátt í að leitinni: Ragga og Jökull, Maurice og Stjarna og Hermann og Monsa.
Teymin fengu svæði frá Varmá í Mosfellsbæ að Geldingarnesi. Það var svo um klukkan 17:30 að maðurinn fannst með neðansjávarmyndavél á svipuðum slóðum og talið er að bátnum hafi hvolft síðustu helgi.