Hundaæfing á verslunarmannahelginni

Um verslunarmannahelgina var Björk frá Hvolsvelli, eigandi hundsins Krumma, í heimsókn hjá vinum og ættingjum hér á Ísafirði. Hún setti sig í samband við félaga sína í BHSÍ hér fyrir vestan og í framhaldi var ákveðið að taka æfingu með henni og eineygða Krummanum.

Fyrir utan Björk og Krumma, mættu Jóna með Tinna, Hörður Sævar með Skvísu, Auður með Skímu og Skúli með Patton. Því miður gat Auður Björns ekki mætt á æfinguna.

Æfingin gekk í alla staði mjög vel fyrir sig, nema hvað? En hins vegar var eins og alltaf skortur á vindi. Alltaf sama blíðan hér fyrir vestan!

Teknar voru myndir af æfingunni og er þær inni í myndamöppu heimasíðunnar.

Með kveðju, Skúli